Spurningar og svör
Fyrir hvern er Tantra nudd?
Tantra nudd er dásamleg leið fyrir alla til að komast í dýpri tengsl við eigin tilveru.
Ég býð upp á nudd fyrir konur frá 18 ára aldri. Nuddið er gefið af alúð og í líkamlegri og orkulegri nánd.
Hvernig undirbý ég mig fyrir nuddið?
Þú ert velkomin eins og þú ert, en það er gott að þú gefir þér smá tíma áður til að ná innri ró og setja þér ætlun fyrir nuddið. Hvað er það sem þig langar að kanna í þinni innri veru í gegnum þessa reynslu? Það er gott að borða ekki um það bil tveimur klukkustundum fyrir nuddið.
Ég mæli einnig með því að þú gefir þér góðan og rólegan tíma með sjálfri þér eftir nuddið til að ná utanum upplifunina. Áhrif og uppgötvanir geta komið upp á yfirborðið á meðan nuddinu stendur eða klukkutímum og dögum síðar.
Hvenær get ég bókað tíma?
Tímabókanir frá klukkan 10:00 til 21:00 alla daga vikunnar. Símtal eða skilaboð í síma 791 7979 eða með tölvupósti jonas@ljosvikingur.is.
Hvar er fer nuddið fram?
Í Drekavogi, 104 Reykjavík. Ég er hér til að styðja þig á þinni leið og hef vandað mig við að skapa þægilegt, rólegt og öruggt umhverfi.
Erum við klædd eða nakin í nuddinu?
Þú ert nakin í nuddinu og ég klæðist boxer buxum. Það er ekki í boði að ég sé nakinn.
Tantra nudd er kærleiksríkt heilnudd og náin upplifun. Það fer með okkur þangað sem við erum í fullri vitund, berskjölduð og þar sem við getum stigið inn í uppruna ástarinnar innra með okkur. Í nuddinu er lögð áhersla á snertingu, nánd og hjartatengingu.
Ef nekt og nánd er krefjandi fyrir þig, þá tek ég auðvitað tillit til þess í nuddinu. Við ræðum saman hvernig við nálgumst það, áður en nuddið hefst.
Hvar lærðirðu að gefa Tantra nudd?
Ég útskrífaðist sem Tantra nudd þerapisti árið 2022 frá Tantra Temple í Danmörku. Það var krefjandi nám sem tók rúm þrjú ár, kennt af reyndum Tantra kennurum og þerapistum sem hafa tileinkað líf sitt að miðla fornri vitneskju Tantra vísindanna.
Fyrir nánari innsýn í námið og nálgun Tantra Temple í Danmörku, hvet ég þig til að lesa yfir námskránna og vef þeirra almennt.
Þarf ég að vita eitthvað um Tantra áður en ég fer í nudd?
Þú getur þegið Tantra nudd án þess að vita nokkuð um Tantra eða andlega vegferð almennt. Grundvallaratriði í Tantra er að "Tantra hefst þar sem þú ert" og ég tek á móti þér þar sem þú ert stödd á þinni leið, nær hinu sanna sjálfi.
Ég er í ástarsambandi. Er rétt að þiggja Tantra nudd?
Margar konur sem koma í nudd eru í ástarsambandi. Það er eðlilegt og þú ert velkomin.
Það sem fer fram í nuddinu snýst ekki um mig. Snertingin er meðvituð og ástrík og athyglin er alfarið á þér, líkama þínum og þinni líðan. Kynlíf er aldrei möguleiki og ég vinn innan skýrs ramma og gilda. Þú ert að stíga skrefið nær sjálfri þér.
Það er mín reynsla að konur koma með vitund og hvatningu síns maka, en kannski vilt þú halda þínu heilunarferli nálægt þér. Bæði er í lagi. Það sem skiptir máli er að þín ætlun sé skýr.
Það eru líkur á því að það sem þú kemst í tengsl við innra með þér, hafi áhrif á þitt daglega líf sem og ástarsamband. Ég hvet þig til að ræða löngun þína til að þiggja Tantra nudd við þinn heittelskaða.
Ég er ekki viss um að ég sé tilbúin að upplifa Tantra nudd
Tantra nudd er fyrir alla, en nálgun, þekking og orka sem hver þerapisti býr yfir er persónubundin. Hvert nudd er einstök upplifun þar sem óteljandi forsendur og innra ástand koma saman. Ég hvet þig til að velja þinn nuddara/þerapista af kostgæfni. Hugleiddu þessa ákvörðun, hlustaðu á innsæið og stígðu af hugrekki inn í dásemdir hins óþekkta.
Þér er velkomið að senda mér tölvupóst ef þú hefur spurningar.
Að auki hvet ég þig að lesa greinar á vef Tantra Temple í Danmörku fyrir dýpri innsýn í heim Tantra nuddsins. Ég deili þeirra sýn á persónulega þróun og gjafir Tantra nuddsins.
Ég er hér þegar þú ert tilbúin.
Mig langar að bjóða minni heittelskuðu í Tantra nudd. Er það möguleiki?
Já. Það koma konur til mín í nudd sem voru hvattar til þess eða boðið af eiginmönnum sínum.
Ef þú ert í þeim hugleiðingum þá tek ég ofan fyrir þér. Það sem ég býð upp á er ástrík og meðvituð snerting í hlýju og öruggu umhverfi. Tíminn snýst alfarið um þína heittelskuðu, hennar upplifun og þarfir. Kynlíf er aldrei í boði og mín nálgun er alúð í hvívetna.
Það er mikilvægt að hún velji sjálf að koma í nudd. Ef annað hvort ykkar eða bæði viljið vita meira áður þið bókið tíma, þá eruð þið velkomin að hafa samband við mig.
Bókanir
Konur frá 18 til 108 ára eru velkomnar að bóka tíma með símtali eða skilaboðum. Nánari upplýsingar er að finna í spurningar og svör.